157. löggjafarþing — 48. fundur,  15. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[14:11]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Við erum hér að tala um kerfi sem mun kosta í innheimtu mörg hundruð milljónir fyrir ríkissjóð, sem mun kosta mörg hundruð milljónir, milljarða, fyrir þá sem nota og þurfa að borga, eins og t.d. bílaleigurnar. Við erum að búa til einhvern óskapnað í innheimtu á tiltölulega einföldu kerfi sem hægt er að borga, og ef vinstri menn vilja hækka, með olíugjaldinu. Ég biðla til hæstv. ríkisstjórnar að draga þetta mál til baka. Lesið umsagnirnar frá bílaleigunum þar sem er talað um hver kostnaðurinn verður fyrir bílaleigurnar, hver kostnaðurinn verður fyrir fyrirtækin og heimilin í landinu. Ég biðla til ykkar að draga þetta mál til baka. Þetta er algjört dellumál frá A til Ö. Takið þetta til baka.

(Forseti (ÞSv): Forseti minnir á að ávallt ber að ávarpa forseta í ræðum.)