kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegi forseti. Það er áhugavert að hlusta á hæstv. ráðherra, Loga Má Einarsson, færa rök fyrir málinu sem eru að síðasta ríkisstjórn hafi verið með þetta. Fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins er hugmyndafræðingur, það eru einu röksemdirnar sem koma. Þetta er reyndar góð röksemd en hún er ekki alveg rétt. Auðvitað hefur kílómetragjaldið verið í umræðunni mjög lengi en það er alveg ástæða fyrir því að engin þjóð hefur stigið þetta skref, vegna þess að þegar kemur að framkvæmdinni þá er í mörg horn að líta. Ég vek athygli á því, virðulegi forseti, að hér var ekkert samráð. Það er náttúrlega kolrangt að eldsneytisverð lækki vegna þess að menn fá bara bakreikning annars staðar, það er nú ein blekkingin. Eins og hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir benti á eru allir sammála um það að við áttum að vanda okkur betur þegar kom að innheimtu innviðagjaldsins.
Virðulegur forseti. Þetta er innviðagjaldið á sterum. (Forseti hringir.) Hæstv. ríkisstjórn segir bara: Heyrðu, við erum að framkvæma það sem aðrir voru að gera. (Forseti hringir.) Við fundum því að vísu allt til foráttu en það er ekki einu sinni rétt.