157. löggjafarþing — 48. fundur,  15. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[14:14]
Horfa

Jón Gunnarsson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Hér eru stjórnarliðar uppteknastir af því að reyna að rangfæra eitthvert mál fyrir þinginu. Það var ástæða fyrir því að það komu fram hugmyndir um þetta mál á síðasta kjörtímabili en það var ástæða fyrir því að það var aldrei afgreitt. Það var af því að það var engin samstaða um það, alla vega ekki í þingflokki Sjálfstæðismanna. Það var af ástæðu sem málið var ekki afgreitt. Menn verða að fara að kannast við eigin króga en vera ekki að reyna að afsaka sig með því að hann sé getinn annars staðar. Reyndar mun uppeldið á þessum fara fyrir bí. Það er engin önnur þjóð, ekkert annað land sem fer þessa leið. Segir það bara ekki sína sögu? Það eru allt aðrar leiðir farnar í öðrum löndum til að jafna þessa gjaldtöku og reyndar með réttri útfærslu munu verða til þess að erlendir ferðamenn borga allt að 40% af uppbyggingu þjóðvegakerfisins. Þeir eru ekki að borga það hátt hlutfall, miðað við það að sitja við sama borð (Forseti hringir.) og þeir sem fara oft um hér á Íslandi. Það verður dýrt að reyna þessa tilraun, virðulegur forseti, og það verður erfitt að vinda ofan af svona rugli.