kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegi forseti. Það eina rétta í þessu vonda máli er að vísa því frá. Það er ekki ein jákvæð umsögn um þetta mál. Það er ekki einn umsagnaraðili í landinu að kalla eftir þessu, ekki einn. Það hefur ekki komið skýrt fram í meðförum þessa máls hver hin raunverulega þörf er fyrir þessa rándýru og flóknu kerfisbreytingu sem leggur álögur og áhyggjur á allflesta landsmenn og fyrirtæki. Þetta er grafalvarlegt mál. Þetta mun hafa ófyrirséðar afleiðingar nái þetta fram að ganga. Það lengist bara í listanum yfir það hversu flókið þetta er og hve mörg úrlausnarefni eru óunnin. Enn eru að berast umsagnir um það hversu vont þetta er, hvort sem er fyrir ferðaþjónustuna, fyrir eldri borgara, fyrir landsbyggðina, fyrir íþróttalífið eða hvar sem við berum niður. Við skulum hafna þessu máli.