157. löggjafarþing — 48. fundur,  15. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[14:21]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Við erum fyrir löngu búin að sjá í gegnum aðferðir hæstv. ríkisstjórnar. Það eru sett af stað einhvers konar leikrit með alls konar nöfnum til að hækka skatta. Hér var gripið til þess ráðs að segja: Heyrðu, hér erum við með kerfisbreytingu sem reynist rosalega góð en við ætlum alls ekki að hækka skatta. Nú sjá það allir að þetta er til þess að hækka skatta. En það sem ég skil ekki, virðulegi forseti, er það af því að hæstv. ríkisstjórn — og ég var á fundi eins og margir aðrir hv. þingmenn nokkrum húsum frá þar sem hæstv. fjármálaráðherra var ekki með nein svör við þeirri gagnrýni sem kom fram. Engin svör hafa komið fram um af hverju hæstv. ríkisstjórn verður nú — talandi um það muna ekki hvað hún sagði. Ég fullyrði að hæstv. ráðherrar og hv. þingmenn sem voru áður og þá í stjórnarandstöðu töluðu um að fyrirsjáanleikinn væri mikilvægur. Af hverju í ósköpunum, virðulegi forseti, eru menn ekki tilbúnir til þess að bíða með þetta í eitt ár?