kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegi forseti. Við greiðum hér atkvæði um 1. gr. þessa frumvarps um að það eigi að greiða kílómetragjald eins og í þessum lögum segir. Þetta er eina einfalda greinin í öllu frumvarpinu. Allt hitt er flækjustig í hátt í 50 blaðsíðna atkvæðagreiðsluskjali. Þó að málið sé búið að koma hér núna fjórum sinnum til þingsins á einn eða annan hátt og eigi að vera breytt á milli umræðna þá er hér enn fullt af tæknilegum breytingum sem sýnir hversu flókið og ruglað þetta er og hversu mikið bákn þetta verður. Ég held að við ættum að fara varlega í að samþykkja eina einustu lagagrein í þessu frumvarpi.