kílómetragjald á ökutæki.
Frú forseti. Ég er aðeins á sömu nótum og hv. þm. Vilhjálmur Árnason. Maður skyldi ætla, miðað við öll þau fögru fyrirheit sem núverandi ríkisstjórn og meiri hluti vill standa að í svokölluðum loftslagsmálum, að þetta væru einmitt þau ökutæki sem þau vildu helst hafa á götunum. Hér hefur oft verið gagnrýnt í umræðum um umferðina að það séu allt of margir bílar á ferðinni miðað við þann farþegafjölda sem er á ferðinni, þ.e. einn til tveir í bíl. Væri ekki bifhjólið draumaökutæki þessa meiri hluta, þessarar ríkisstjórnar? Við léttum af götunum, slítum götunum minna, bæði yfirborði og sérstaklega þó því sem kallað er burðarlag í vegagerð. Þetta hefur ekkert vægi hvað varðar burðarlagið. En það bara breytir engu. Það er alveg sama hvaða rök eru nefnd. Hæstv. ríkisstjórn virðist hafa sett tappa í eyrun við öllum rökum sem hafa verið lögð fram í málinu.