157. löggjafarþing — 48. fundur,  15. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[14:32]
Horfa

Pawel Bartoszek (V):

Virðulegi forseti. Ég vil vekja athygli þingheims á því að í þessari breytingartillögu er komið til móts við sjónarmið bænda og þannig gert að allar dráttarvélar, sem og eftirvagnar, verði undanþegnar kílómetragjaldi. Þetta var bara sjónarmið sem kom mikið fram. Upprunalega átti að einskorða þetta við ákveðna flokka en nú eru allar dráttarvélar þar sem eigandinn er skráður í landbúnaðarskrá undanþegnar. Ég hvet þingheim til að fylkja sér á bak við þessa breytingartillögu.