kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegur forseti. Ég hugsa að þetta sé eina breytingartillaga meiri hlutans sem hægt er að styðja, enda er verið að undanþiggja einhvern frá kílómetragjaldinu í þessari breytingartillögu og þá styð ég það að sjálfsögðu. Hér var hið augljósa að undanþiggja dráttarvélar af því að það vill nú bara svo til að dráttarvélar eru eiginlega bara með stundamæli en ekki kílómetramæli. Eins og kom fram hjá hv. þm. Þórarni Inga Péturssyni eru þær mestmegnis inni á einkalandi og landbúnaðarlandi í notkun sinni. Það skal þó sagt að það voru ekki allir ánægðir með þessa breytingu og samkeppnishæfni hennar, eins og Félag vörubílstjóra og annað slíkt. Það er um margt flækjustig í þessu en við munum að sjálfsögðu styðja það að einhver sé undanþeginn kílómetragjaldi.