157. löggjafarþing — 48. fundur,  15. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[14:35]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Virðulegur forseti. Svona á lokametrunum gerast hlutirnir stundum hratt og við í þingflokki Framsóknar vorum búin að óska eftir því að þessum lið eða þessari grein yrði skipt aðeins upp en það náðist ekki í tæka tíð. Um leið og ég fagna því að hér sé verið að koma og taka tillit til bænda að því er tengist dráttarvélum og væri á grænu í því þá verð ég því miður að sitja hjá í þessum lið. Í 2. lið 4. gr. er verið að koma inn á fornbílana þar sem verið er að miða við fornbíla frá 1965 og eldri. Ég tel að það sé afar mikilvægt að viðmiðið sé 25 ára bílar og eldri, það sé í rauninni gengið lengra hvað það varðar. Ég mun sitja hjá hvað þetta varðar.