kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegi forseti. Við í þingflokki Sjálfstæðisflokksins getum ekki stutt 4. gr. þó að hún fjalli um þá sem eru undanþegnir gjaldskyldu vegna þess hversu þröng greinin er. Það eru allt of fáir undanþegnir. Hér er t.d. verið að setja kílómetragjöld, eins og kom fram hjá fyrri ræðumanni, á fornbíla, þannig að fornbílaskráningin er farin að gilda allt öðruvísi en hún hefur vanalega gert í okkar lögum. Þessi undanþága þyrfti náttúrlega helst að ná til allra ökutækja en miklu víðar heldur en er hér. Því munum við greiða atkvæði gegn þessari grein eins og öðrum greinum frumvarpsins.