kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegur forseti. Hér greiðum við atkvæði um skráningu á stöðu akstursmælis sem skal vera (Forseti hringir.) gerð að lágmarki einu sinni á hverju almanaksári. Svo er þetta náttúrlega löng grein og flókin, eins og allar hinar, eftir þyngd bílsins og tegund og hitt og þetta. Það er einmitt hér sem seinfærir hópar og, eins og kom fram í umsögn Félags eldri borgara í Reykjavík, fólk hefur helst áhyggjur. Nýir bílar fara ekki í skoðun nema á þriggja ára fresti. Þeir sem eru ekki með rafræn skilríki eða eru ekki færir í þessu hafa miklar áhyggjur af þessu. Þeir eiga samkvæmt minnisblaði fjármálaráðuneytisins bara að fara til Skattsins og fá aðstoð þar af því að þeir eru með leiðbeiningarskyldu. Það verður gaman að sjá hvað það verður löng röð hjá Skattinum í að skrá kílómetrastöðuna fyrir þá sem vilja hafa þetta á hreinu í hverjum mánuði. Það er ótrúlega algengt að fólk sem er meira að segja mjög tækniþjálfað skrái ekki nógu ört hér inn og fái háa bakreikninga þegar það loksins skráir. (Forseti hringir.) Þetta getur sent okkar veikari hópum háa bakreikninga þegar þeir skrá sín ökutæki hér í þetta. (Forseti hringir.) Lægstu tekjutíundirnar eru á þeim ökutækjum sem er verið að bæta við flóruna núna í kílómetragjaldinu.