157. löggjafarþing — 48. fundur,  15. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[14:48]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegur forseti. Hér ræðum við einmitt skil ökutækjaleiga á daggjaldi. Viðskiptavinahópur bílaleiganna er mjög mismunandi. Hvert ökutæki getur verið leigt mörgum sinnum innan 15 daga til mismunandi aðila, hvort sem það er innlendur aðili sem hegðar sér öðruvísi eða erlendur ferðamaður sem tekur bílinn. Því skiptir miklu máli að geta haft valmöguleika í þessu en þetta hér er stillt af eftir flækjustigi Skattsins sem innheimtir þetta en ekki því hvað kemur best út fyrir notandann. Ég hélt að hér ætti að vera einfalt og skilvirkt skattkerfi fyrir notandann.