kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegi forseti. Ég vildi bara koma hér upp og benda á að hér er sérgrein um gjalddaga á eindaga. Mér sýnist gjalddagarnir vera álíka margir og Vatnsdalshólarnir eða óteljandi. Þetta er bara enn eitt dæmi um það hversu flókin útfærsla þetta er, hvað þetta mun vera mikið bákn og hvað þetta mun ekki bara verða dýrt fyrir stjórnsýsluna heldur líka alla þá sem þurfa að sjá um rekstur ökutækjanna, það eru meira að segja ýmsar ríkisstofnanir sem eiga fjölda ökutækja. Allt utanumhald og umsýsla verður yfirgengileg fyrir lítinn sem engan ávinning.