157. löggjafarþing — 48. fundur,  15. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[14:59]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegi forseti. Hér greiðum við atkvæði um grein sem fjallar um viðurlög við broti á þessu sé ekki rétt kílómetragjald greitt. Ég vona svo innilega að þeir sem lenda í því að fá bakreikning eða lenda í eftiráinnheimtu vegna þess að þeir áttuðu sig ekki á því að þeir voru að keyra of mikið miðað við áætlun þurfi ekki að nota jólabónusinn frá ríkisstjórninni til þess að greiða þetta gjald til að losna undan þessum viðurlögum.