kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegur forseti. Hér gefst þingheimi tækifæri til að bæta ráð sitt eftir að hafa fellt frávísunartillögu frá hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur sem leggur það til í þessari breytingartillögu að fresta gildistöku þessa frumvarps. Hér hefur verið tönnlast á því í dag og í umræðu í þessu máli að þetta mál hafi fengið góða kynningu, það hafi verið lagt fram á þinginu og fengið umræðu þar, án þess að taka fram að því hafi verið hafnað hér, og að áformin hafi verið kynnt og þar fram eftir götunum. Það er ekki nægilegur undirbúningur eða fyrirsjáanleiki fyrir þá sem þurfa að starfa eftir settum lögum á Íslandi. Það er ekki ásættanlegt að svona mál sem kveður á um mikla kerfisbreytingu á skattlagningu taki gildi átta dögum eftir að þetta mál er leitt í lög. Þess vegna býð ég þingheimi upp á það að taka þátt í því að fresta gildistökunni um þessa daga sem þarna er kveðið á um.