157. löggjafarþing — 48. fundur,  15. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[15:03]
Horfa

Pawel Bartoszek (V):

Virðulegi forseti. Eins og fram hefur komið hefur þetta mál komið hingað til umræðu í þinginu nokkrum sinnum áður. Þegar efnahags- og viðskiptanefnd samþykkti það frá sér síðasta vor var lagt til að gildistakan yrði í október eða nóvember þannig að ég hef einhverja samúð með þessum sjónarmiðum. En þegar allt er vegið saman tel ég málinu ekki til framdráttar að við frestum gildistökunni um eitt ár og aukum þá kannski frekar á óvissuna.