157. löggjafarþing — 48. fundur,  15. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[15:04]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Við í Framsókn styðjum þessa tillögu og teljum hana vera skynsamlega, sér í lagi í ljósi athugasemda sem hafa komið fram frá bílaleigunum varðandi þennan skamma tíma sem þeim er gefinn til að innleiða þetta nýja kerfi og uppfæra sín tölvukerfi og hvað eina. Við höfum ítrekað bent á það, minni hlutinn í efnahags- og viðskiptanefnd, og óskað eftir því að þessu yrði frestað um ár. Nú gefst okkur hér, þingheimi, tækifæri til þess að koma til móts við þessar fjölmörgu athugasemdir og rétta bílaleigunum og fleirum hjálparhönd og fresta gildistöku þess um eitt ár. Mér er eiginlega óskiljanlegt hvernig hægt er að segja að með slíku sé ekki verið að auka fyrirsjáanleika eða vissu. Ég skil þau rök ekki en ég hvet þingheim til að styðja þessa tillögu.