kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegur forseti. Eins og þingheimur hefur tekið eftir og kannski fleiri þá höfum við bara verið frekar jákvæð í atkvæðagreiðslunni til þessa. Ég ætla að segja það einfaldlega, frú forseti, að það er mér hulin ráðgáta hvernig ríkisstjórnin hefur hagað sinni verkstjórn; að mál sem var tilbúið til afgreiðslu af hálfu ríkisstjórnarinnar hér síðastliðið vor og kom hér inn í haust hafi ekki verið klárað í október eða nóvember til að gefa aðilum tækifæri til að undirbúa sig. Þess vegna studdum við þá tillögu að fresta gildistökunni um heilt ár og greiðum því atkvæði gegn því að gildistakan sé hér eftir 14 eða 15 daga.