kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegi forseti. Bara svo allir séu meðvitaðir um það þá geta flest fyrirtæki í landinu, og sannarlega í ferðaþjónustu, ekki beðið með allar sínar fyrirætlanir þangað til á gamlársdag. Þau eru t.d. löngu búin að selja sína vöru miðað við það umhverfi sem var þegar viðskiptavinurinn keypti þær. Það er algerlega með ólíkindum og ótrúleg ósvífni að hér komi fulltrúar hæstv. ríkisstjórnar og segi að það hafi verið einhver fyrirsjáanleiki í þessu. Það var enginn fyrirsjáanleiki. Það er búið að selja vörurnar eftir þeim lögum sem giltu um atvinnustarfsemi á þeim tíma. Síðan ætla menn að breyta með nokkurra daga fyrirvara. Eitt er það að koma hér með mál sem þau hafa gagnrýnt — ja, við getum bara sagt eins og innviðagjaldið. Þetta er innviðagjald á sterum og mun hafa miklu alvarlegri afleiðingar í för með sér heldur en það mál.