kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegi forseti. Nú erum við að greiða atkvæði í röðum um bráðabirgðaákvæði sem eru mislöng en nokkuð ítarleg hvert og eitt um þær ráðstafanir sem þarf að gera til að koma kerfinu á. Hér er gert ráð fyrir því að ríkisskattstjóri þurfi að búa til áætlun fyrir öll ökutæki strax fyrsta mánuðinn. Þeir sem eru lengi að leiðrétta þessa áætlun eru kannski með miklu lægri akstur, t.d. ökutæki eins og fornbíla og annað sem er miklu minna ekið eða mótorhjól sem er ekki ekið á veturna og annað slíkt — ég veit ekki hvað fara margar vinnustundir hjá opinberum starfsmönnum í að gera þessa áætlun og svo leiðrétta og senda alla bakreikningana og allt sem kemur bara út af þessu ákvæði. En við erum að fara að samþykkja nokkur svona lagaskilaákvæði.