157. löggjafarþing — 48. fundur,  15. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[15:19]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegi forseti. Hér erum við að greiða atkvæði um bráðabirgðaákvæði sem tryggir að allir þeir aðilar sem koma að birgðahaldi á eldsneyti eyði áramótunum í að mæla þessar birgðir til að geta sent ríkisskattstjóra birgðastöðu á miðnætti eða um morguninn til þess að geta sent út flókna útreikninga á því af hvaða eldsneytisbirgðum á að greiða olíu- og bensíngjald og hverjum ekki.