157. löggjafarþing — 48. fundur,  15. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[15:20]
Horfa

Pawel Bartoszek (V):

Virðulegur forseti. Hér er breytingartillaga frá meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar þess efnis að þegar vagnlest er dregin áfram af umhverfisvænu tæki njóti öll vagnlestin 80% afsláttar af kílómetragjaldi fyrstu fjögur árin en ekki bara það tæki sem dregur. Ég fagna þessari breytingu og hvet þingheim til að styðja hana.