157. löggjafarþing — 48. fundur,  15. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[15:21]
Horfa

Pawel Bartoszek (V):

Virðulegur forseti. Í þessu ákvæði til bráðabirgða eru lagðar til alls konar tímabundnar ívilnanir fyrir hópbifreiðar, vagnlestir og umhverfisvæn vinnutæki sem eru til þess gerðar að trappa aðeins af þessu kerfi, auðvelda innleiðingu þess og lækka kostnað vegna flutninga og fólksflutninga, þannig að ég styð innilega þetta ákvæði til bráðabirgða.