157. löggjafarþing — 48. fundur,  15. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[15:22]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Hér í 4. lið á þessum stað er mál sem við höfum rætt heilmikið hér í þingsal og mér þykir miður að nefndin hafi ekki komið sér saman um að gera breytingar á þessum lið. Þetta snýr að kostnaði tengivagna sem verður 60% á næsta ári, 80% árið þar á eftir og fer svo í fullt árið þar á eftir. Þetta þýðir einfaldlega, virðulegur forseti, að það verður dýrara að flytja vörur á landsbyggðina. Vörur munu hækka á landsbyggðinni. Það segir beinlínis í frumvarpinu. Það verður dýrara fyrir fyrirtæki á landsbyggðinni að senda vörur frá sér. Þetta mun þar af leiðandi skerða samkeppnisstöðu fyrirtækja á landsbyggðinni.

Virðulegur forseti. Þetta er vont mál og ég hvet þingheim til að skoða þetta. Ég held að þetta séu ekki stórar upphæðir en nóg til þess að þetta muni hafa þessar afleiðingar sem hér var lýst áðan.