157. löggjafarþing — 48. fundur,  15. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[15:23]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S):

Virðulegur forseti. Ég vona að þingheimi sé að verða það ljóst núna, eftir afgreiðslu og atkvæðagreiðslu undanfarna tvo tíma um kílómetragjald, hvurs lags óskapnaður þessi lög eru og munu verða óskapnaður bæði í framkvæmd og útfærslu. Ég vona núna að þetta verði til þess að við sjáum að það að ætla að bjóða landsmönnum upp á þetta eftir nokkra daga, að setja þetta á eftir nokkra daga, er algjörlega ótækt. Við eigum að taka þetta mál og vísa því frá. Ég vona svo innilega að hæstv. ríkisstjórn sjái að sér og dragi þetta mál til baka. Þetta mál er óskapnaður frá A til Ö og verður ómögulegt að reyna að koma því í útfærslu og framkvæmd eftir nokkra daga.