157. löggjafarþing — 48. fundur,  15. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[15:24]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegur forseti. Við erum að ljúka atkvæðagreiðslu eftir 2. umræðu um þetta vonda mál sem mun bitna á svo mörgum hópum og ekki síst á landsbyggðinni. Við höfum verið núna í lokin að greiða atkvæði einmitt um hvernig þyngri ökutækin eru skilgreind en nú mun allur flutningskostnaður til landsbyggðarinnar með vörur hækka og flutningskostnaður hráefna og vara á markað frá landsbyggðinni líka. Samkeppnishæfni landsbyggðarinnar til að halda úti framleiðslustörfum mun dragast verulega saman. Allt er þetta réttlætt, eins og allir aðrir skattar hæstv. ríkisstjórnar, með því að þetta eigi að fara í innviðauppbyggingu. Samt fer ekki króna af þeim 12 milljörðum sem aukalega verða teknir af umferðinni í vörugjöldum, hækkuðum krónutölugjöldum og kílómetragjöldum til samgöngumála. Það er bara vont mál að það sé verið að slá ryki í augu fólks (Forseti hringir.) og segja að það sé nauðsynlegt að byggja upp vegakerfi ef svo fer ekki ein króna til þess, og ný samgönguáætlun sýndi það þrot sem þar er í gangi.