157. löggjafarþing — 48. fundur,  15. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[15:26]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M):

Frú forseti. Ég vona að sem allra flestir landsmenn hafi haft tækifæri til að fylgjast með þessari atkvæðagreiðslu og hvernig atkvæðin hafa dreifst. Þá vona ég líka svo sannarlega að fréttamiðlar landsins muni gera þessu ítarleg skil því nú höfum við þetta svart á hvítu: Landsbyggðarþingmenn sem tilheyra meiri hlutanum ætla ekki að standa með landsbyggðinni.