157. löggjafarþing — 48. fundur,  15. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[15:28]
Horfa

Pawel Bartoszek (V):

Virðulegur forseti. Hér erum við að ræða um viðauka og þar er talað um ýmsar hámarksþyngdir. Út af því að hér var rætt áðan um flutningskostnað á landsbyggðinni þá hefur farið fram áhrifamat í frumvarpinu sem bendir til þess að á næsta ári muni kostnaður vegna flutninga lækka um 1%, standa í stað árið þar á eftir og þá mögulega hækka um 1% árið eftir það. En ég tek fram að frumvarpið er með endurskoðunarákvæði sem gefur okkur þá færi á að bregðast við ef ástæða er til.

Varðandi gildistökuákvæðið þá langar mig að nefna að nú eru liðin nánast upp á dag tvö ár síðan þingið samþykkti lög um kílómetragjald sem eru í gildi um rafmagnsbifreiðar. Og hvernig var gildistökuákvæðið í þeim lögum? Lög þessi öðlast þegar gildi.