kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegur forseti. Þessi lög hafa verið lengi til umræðu og eftir því sem þau eru lengur til umræðu koma fleiri vafamál upp og það kemur alltaf betur og betur í ljós hvernig þetta mun bitna á landsbyggðinni og ekki síst flutningskostnaðinum og líka varðandi ferðaþjónustuna. Nú þegar eru minni ferðaþjónustuaðilar um landið farnir að hafa miklar áhyggjur vegna þess að þeir treysta á það að ferðamennirnir komi til sín á bílaleigubílum. Núna fer það í fyrra horf þegar ákveðinn kílómetrafjöldi var hjá ferðamönnunum. Þeir leigðu bílana og þeir fóru bara upp í Borgarnes og ekkert lengra. Nú eru þau áhrif að fara að koma aftur.
Íþróttafélögin nota í meira og meira mæli bílaleigubíla til að fara í íþróttakeppni. Nú er íþróttaiðkun barna að fara að snarhækka í verði af því að þar er líka verið að setja vörugjöld á sama tíma. (Forseti hringir.) Þetta mun koma á mörgum stöðum niður, hvert einasta heimili, hver einasti félagsskapur og hvert einasta fyrirtæki mun finna fyrir slæmum áhrifum þessa frumvarps.