157. löggjafarþing — 48. fundur,  15. des. 2025.

almannatryggingar.

236. mál
[15:48]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Þetta frumvarp er með göfugt markmið, þ.e. að koma til móts við þá efnaminnstu í samfélaginu. Það kemur í ljós að hátt í 30.000 manns munu njóta þessa jólabónuss sem hér er að fara í framkvæmd. Eftir að málið var tekið út úr nefnd 5. desember síðastliðinn bárust nefndinni tölur frá Tryggingastofnun sem sýna að í hópnum eru margir mjög efnamiklir einstaklingar og einstaklingar sem eru með yfir milljón í tekjur. Ég held að það séu 1.150 einstaklingar sem það á við um. Af þessu bárust fréttir og ég verð að segja að mann rak í rogastans að sjá viðbrögð hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra þegar hún (Forseti hringir.) fullyrðir að hér sé um rangfærslur að ræða (Forseti hringir.) og vænir þá sem eru að fjalla um þetta um að vera að skrökva. Ég spyr, virðulegur forseti: (Forseti hringir.) Hver skrökvar í þessu máli?