almannatryggingar.
Virðulegur forseti. Formaður Flokks fólksins tekur mynd af sér í farþegasætinu á Facebook og lofar fólki jólabónus. Jólabónus, segir hún og kannski sést, ef að líkum lætur, hver það er sem situr og stýrir þjóðarskútunni, reyndar úr farþegasætinu. Þetta mál er ekki jólabónus. Til þess er notuð desemberuppbót sem öryrkjum er ætluð með lögum. Þetta mál er eftirlegukind úr Covid. Þetta er Covid-aðgerð. Það er ákveðið að nota 2 milljarða núna til að dreifa, gefa á garðann, eins og nefnt hefur verið. Í meðferð málsins í hv. velferðarnefnd hefur komið í ljós að stór hluti þeirra sem mun þiggja þetta er ekki fátækasta fólkið. Markmiðið með þessu frumvarpi er fjarri öllum sanni. Ég mun ekki geta stutt þetta mál hér. Ég frábið mér þennan málflutning frá Flokki fólksins, eins og hann hefur birst hér, að þetta sé einhver desemberuppbót í nafni kærleikans og jólanna. (Forseti hringir.) Þetta er fráleitur málflutningur, virðulegur forseti.