157. löggjafarþing — 48. fundur,  15. des. 2025.

almannatryggingar.

236. mál
[15:55]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Aðeins meira um þetta mál og afstöðu okkar til þess. Það kom fram í umsögnum og í meðferð málsins í nefndinni að jafnvel ASÍ og fleirum þætti þetta allt of almenn aðgerð. Það eru 30.000 manns, fleiri, jafnvel hátt í 40.000, sem munu njóta þessara greiðslna. En það sem ég gagnrýni eru viðbrögð hæstv. ráðherra, að kalla þetta falsfréttir. Það er verið að vitna í tölur frá Tryggingastofnun Íslands, það er verið að vitna beinhart í þær tölur þar sem kemur fram að þúsundir einstaklinga séu að fá þessar greiðslur sem eru annaðhvort efnamiklir eða með yfir milljón á mánuði í tekjur nú þegar. Er peningunum best fyrir komið þannig? En hver eru viðbrögð annarra fulltrúa úr meiri hlutanum við þessum yfirlýsingum hæstv. ráðherra, (Forseti hringir.) sem vænir þá sem tala á þessum nótum og vitna í tölur Tryggingastofnunar um rangindi og að verið sé að bera (Forseti hringir.) á borð falsfréttir? Eru þetta falsfréttir, kæru þingmenn?

(Forseti (BHar): Forseti minnir hv. þingmenn á tímamörkin sem eru ein mínúta í þessum lið.)