almannatryggingar.
Frú forseti. Tölurnar sem minni hluti nefndarinnar er að vísa til eru frá 2024, svo því sé haldið til haga. Þá voru ekki tekjuviðmið varðandi þessar greiðslur en nú eru sett tekjuviðmið þannig að það er ólíklegt að þessir 11 eignamestu einstaklingar sem voru á því blaði og 64 í þeim hópi sem voru næsteignamestir á því blaði fái þessar greiðslur vegna þess að það eru tekjuviðmið og það var tekið tillit til bæði fjármagnstekna og annarra tekna. Mér finnst því dapurlegt að þurfa að hlusta á þennan málflutning þegar við erum að taka ákvörðun í þessu ofboðslega fallega og góða máli sem stærstu hópar samfélagsins sem eru í hópi tekjulægstu öryrkja og eldri borgara sem hafa beðið vikum saman eftir að málið fari í gegn og fái greiðsluna í útgjaldaþyngsta mánuði ársins. Þetta skiptir máli, tölum þetta upp.