157. löggjafarþing — 48. fundur,  15. des. 2025.

almannatryggingar.

236. mál
[15:59]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Það er hlutverk okkar hér á Alþingi að skapa heilbrigt, skilvirkt og sanngjarnt skattkerfi til að skila sem mestum þrótti í samfélaginu til að skila sem mestum tekjum til að hjálpa okkar veikustu bræðrum og systrum, til þess að styðja við þau. Eins og þetta mál er hugsað í grunninn erum við öll sammála um í þessum sal. En það er algerlega ólíðandi þegar virðuleg velferðarnefnd er að vinna þetta mál og fær til sín upplýsingar og upplýsingum er miðlað í fjölmiðlun að þá kemur hæstv. ráðherra og kallar þetta falsfréttir, sakar alla um falsfréttir og fer með rangt mál. Svoleiðis getum við ekki haft það hér þegar við erum að vinna að hlutverki okkar, að tryggja það að okkar minnstu bræður og systur fái það sem þau eiga rétt á og við viljum stýra hlutunum í réttar áttir.