157. löggjafarþing — 48. fundur,  15. des. 2025.

almannatryggingar.

236. mál
[16:00]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Flf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Hér greiðum við atkvæði um mjög gott mál sem við ættum öll að geta sameinast um en ekki verið að blása upp eitthvað neikvætt af því að hugsanlega sé hægt að tína til að einhverjir gætu slæðst þarna með sem hefðu einhverjar meiri tekjur en frumvarpið gerir ráð fyrir. Þetta frumvarp gerir ráð fyrir að þetta sé ætlað þeim tekjulægstu í þjóðfélaginu og við eigum að geta stutt það. Þessi jólamánuður er erfiður mörgum fjölskyldum og það munar um þessa upphæð. Við sem erum hérna í forréttindahópi og höfum góðar tekjur ættum nú ekki að leggja lykkju á leið okkar til að tala þetta mál niður. Við ættum að sýna samhug í verki og greiða þessu atkvæði. Meiri hlutinn af þessu fólki þarf virkilega á þessu að halda. Ég hef ekki trú á öðru en að þessar greiðslur renni til þeirra sem þurfa á því að halda. Við skulum bara vona að ef einhverjir af þessum 11 einstaklingum fá þetta og hafa ekki þörf á því gefi þeir peninginn til Hjálparstarfs kirkjunnar. Ég skora á þá að gera það.