157. löggjafarþing — 48. fundur,  15. des. 2025.

almannatryggingar.

236. mál
[16:03]
Horfa

Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Mér er ljúft og skylt að koma og leiðrétta hv. þingmann sem hér talaði rétt áðan. Staðreyndin er sú að þær upphæðir sem fóru í fyrra, með öðrum skilyrðum, fóru mjög lítið til hóps sem er vissulega eignamikill og með háar tekjur. Þetta eru einhverjir örfáir; mér reiknaðist til að þetta væri svona 0,2% af upphæðinni sem fór til tekjuhæstu hópanna. Langstærsti hlutinn fór til þeirra sem eru mjög tekjulágir sem vissulega þurftu á upphæðinni að halda því að öll viljum við halda okkar gleðilegu jól. Þetta mál er auðvitað, og við verðum að átta okkur á því, eingöngu fyrir fólk sem fær bætur frá Tryggingastofnun, sem færir hlutdeildarbætur, örorkubætur og núna ellilífeyri, og þetta er eingöngu fyrir þjónustuþega Tryggingastofnunar. Þannig að við erum að tala um fólk sem hefur minnst á milli handanna og fær núna verðskuldaðan bónus til að geta haldið gleðileg jól. (Gripið fram í: Heyr, heyr. )