almannatryggingar.
Virðulegur forseti. Ég get tekið undir það sem hv. þingmaður sagði hér áðan. Það er mikilvægt að á jólunum séum við að styðja við þá sem minnst mega sín og það er mikilvægt að við séum að gera það með þessari aðgerð. Varðandi það að það sé mögulega verið að nýta hluta fjármagnsins til einhverra tekjuhærri hópa þá er það eitthvað sem þarf að laga en þó með því markmiði að við séum þá að nýta fjármagnið enn betur til þeirra sem minna mega sín og þurfa á því að halda. Það er sannarlega mikið af fólki sem þarf stuðning til að geta haldið gleðileg jól.