almannatryggingar.
Virðulegi forseti. Þetta er mikilvægt mál og já, ég ætla ekki að lá hæstv. félags- og húsnæðisráðherra það að sýna of mikinn kærleika. Ég ætla frekar að hrósa henni fyrir það. Auðvitað er það þannig að það er verið að miða við einhverjar gamlar tölur. Greiðsluviðmiðin voru engin á þessari greiðslu til öryrkja á sínum tíma og það er verið að breyta því. Það eru ströng greiðsluviðmið. Við erum að reyna að ná í fátækasta fólkið. Ef reynslan verður síðan þannig að við náum því ekki þá skoðum við það auðvitað á næsta ári. En guð minn góður, það er að teiknast upp hér mynd í þessum þingsal af stjórnarandstöðunni sem ég bara skil ekki. Það er stutt síðan við ræddum hér að lögfesta samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og þá voru líka einhverjir útúrsnúningar og mótbárur gagnvart þeim hópi. Núna erum við að tala um tekjulægsta hópinn í samfélaginu, bæði öryrkja og eldri borgara. Ég bið ykkur, kæru þingmenn í stjórnarandstöðunni, að styðja okkur í þessu; verið með fólkinu í þessu. Jólin eru fram undan og ég hvet ykkur til þess að segja já. Ég mun segja já í þessu máli.