almannatryggingar.
Frú forseti. Málið er í sjálfu sér talsvert gallað eins og hefur komið fram í máli nokkurra hv. þingmanna með tilvísun í þessa 11 einstaklinga en þegar fólk með ágætar tekjur er skoðað þá er talan umtalsvert meiri. Hitt er annað mál að vegna þeirrar staðreyndar að í sama málinu er bæði mjög efnað fólk og líka fólk sem þarf svo sannarlega á þessu að halda þá treysti ég mér að þessu sinni ekki til að vera á móti þessu. Ég mun greiða atkvæði með þessu máli en ég vil jafnframt hvetja hæstv. ríkisstjórn til að skoða það fyrir sama tíma að ári, svo maður segi það bara, að útfæra þetta með öðrum hætti þannig að það nýtist fyrst og fremst og eiginlega eingöngu þeim sem sannarlega þurfa á því að halda en ekki stóreignafólki sem er jafnvel upp í tekjuviðmiði líka.