157. löggjafarþing — 48. fundur,  15. des. 2025.

almannatryggingar.

236. mál
[16:13]
Horfa

Þóra Gunnlaug Briem (Flf):

Frú forseti. Við greiðum hér atkvæði um mikilvægt mál, um tekjuauka fyrir efnalitla lífeyrisþega, bæði öryrkja og eldri borgara, til að hjálpa þeim að komast aðeins léttar í gegnum jólin og þau útgjöld sem þeim fylgja. Sú breyting hefur verið gerð að greiðslan nær nú til mun fleiri ellilífeyrisþega en áður. Þeir fengu þessa eingreiðslu í fyrsta skipti í fyrra fyrir tilstuðlan þingmanna Flokks fólksins sem í þetta sinn nær, eins og áður sagði, til fleiri eldri borgara en á síðasta ári.

Frú forseti. Ég segi já.