157. löggjafarþing — 48. fundur,  15. des. 2025.

almannatryggingar.

236. mál
[16:15]
Horfa

Jónína Björk Óskarsdóttir (Flf):

Virðulegur forseti. Ég fagna því að við skulum vera að greiða atkvæði um þetta mikilvæga mál. Ég harma það sem ég er búin að vera að hlusta á hérna áðan, þessar svartsýnisraddir um hvað hinir og þessir séu að fá sem eiga það alls ekki skilið. Það er alltaf erfitt að eiga við alla útreikninga þar sem miðað er bara við örorkulífeyrinn frá Tryggingastofnun og lægsta lífeyrinn. Það er fólk sem jafnvel hefur verið öryrki frá ungum aldri. Svo vitum við ekkert, það kannski giftist inn í góða fjölskyldu og á eignir og þetta eru allt saman fasteignir sem hv. þingmenn hafa verið að tala um hérna. En ég er glöð í hjarta og fagna því að við skulum vera að færa þessu fólki okkar eingreiðslu sem á það svo sannarlega skilið, sem hefur unnið hörðum höndum í lífinu, verið jafnvel heimavinnandi með börnin líka. — Til hamingju.

(Forseti (BHar): Forseti minnir á að þessi liður er til að gera grein fyrir atkvæði sínu.)