157. löggjafarþing — 48. fundur, 15. des. 2025.
endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi.
263. mál
Virðulegi forseti. Við styðjum þetta mál sem er gríðarlega mikilvægt fyrir landið í heild. Kvikmyndagerð er grein sem hefur áhrif á byggðarlög úti um allt land. Þetta er grein sem skapar fjölbreytt störf. Þetta er grein sem gefur okkur tækifæri í markaðssetningu á landinu okkar á marga vegu. Ég fagna því að það sé verið að framlengja þetta og ég tel að við eigum að gera miklu meira þegar kemur að því að efla nám og tækifæri sem snúa að kvikmyndagerð á Íslandi.