157. löggjafarþing — 48. fundur,  15. des. 2025.

endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi.

263. mál
[16:30]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Þetta er jákvætt mál. Það hefur haft alveg gríðarleg áhrif að við skyldum hafa farið á þessa braut fyrir nokkrum áratugum, reyndar að frumkvæði okkar Framsóknarmanna en margir aðrir hafa þó stutt það á leiðinni. Þetta hefur hreinlega búið til nýja atvinnugrein í landinu og verið hluti af því að styðja við skapandi greinar og þá möguleika sem við höfum þar. Ungt fólk flykkist gjarnan að þessari atvinnugrein af því að hún er svo fjölbreytt. Þetta er ekki einhver ein starfsgrein.

Síðan vil ég bara taka undir það sem hv. þm. Halla Hrund Logadóttir sagði hér um áhrifin hringinn í kringum landið sem eru svo mikilvæg og auðvitað á ferðaþjónustuna. Úr því að ríkisstjórnin vill ekki styðja við neytendamarkaðssetningu þá er það alla vega mikilvægt að hún sé tilbúin að halda áfram á þessari braut. Við munum styðja þetta mál.