endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi.
Virðulegur forseti. Við erum að fara að greiða atkvæði um mikilvægt mál, um endurgreiðslu kostnaðar vegna kvikmyndagerðar. Það er gríðarlega mikilvægt að ná þessu inn og framlengja þetta verkefni. Þetta skiptir máli fyrir samfélagið á svo margan hátt; fyrir menninguna, fyrir landkynningu og þarna erum við að fara að styðja jafnframt enn frekar við framleiðslu á barna- og unglingaefni sem ég tel mjög mikilvægt fyrir okkar tungumál líka.
Ég vil þakka hæstv. ráðherra sérstaklega fyrir að leggja þetta mál fram og síðan auðvitað nefndinni allri fyrir vinnuna. Það hefur verið ánægjulegt að fylgja þessu máli eftir og ég styð það að sjálfsögðu.