viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir og hollustuhættir og mengunarvarnir.
Virðulegi forseti. Það er margt í þessu frumvarpi sem er jákvætt, þetta eru ákveðnar tæknilegar breytingar. En við verðum að horfast í augu við það að hér erum við að besta vonda innleiðingu á löggjöf, á Evróputilskipunum, í stað þess að gera þær breytingar sem þarf að gera á þessu kerfi. Og hvað er ég að horfa hér á? Jú, við þurfum að fara í áhrifamat. Við þurfum að horfa á það í samhengi við skipasiglingar, flugleiðirnar okkar, áhrif á samkeppnishæfni Íslands og hvernig við t.d. getum verið samkeppnishæf í flugi. Það er ekki við hæfi að íslensk flugfélög séu að borga meira fyrir losun heldur en flugfélög sem fljúga beint, að millilendingin hér á landi kosti meira. Við verðum að horfa á þetta út frá samkeppnishæfni landsins. Við þurfum á sama tíma að vera metnaðarfull þegar kemur að orkuskiptum og því þurfum við líka að horfa á það að ávinningurinn og tekjurnar hér skili sér, eins og Samtök iðnaðarins og fleiri benda á, í fjárfestingar, í innviðum, orkuskiptum og öðru sem getur tryggt að við höldum áfram að vera í fremstu röð. (Forseti hringir.) Þetta tvennt þarf að fara saman og því verðum við á gulu í dag.