157. löggjafarþing — 48. fundur,  15. des. 2025.

viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir og hollustuhættir og mengunarvarnir.

192. mál
[16:37]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Já, ég deili að vissu leyti áhyggjum, m.a. hv. þm. Höllu Hrundar Logadóttur, um það að við verðum að vera vel á varðbergi til þess að verja samkeppnishæfnina. Mér þykir gott að finna það líka að Framsóknarflokkurinn stendur eftir sem áður keikur með til að mynda EES-samningnum. Það skiptir mjög miklu máli að tala skýrt í þessu pólitíska andrúmi sem við erum í núna. Ég vil sérstaklega geta þess að stjórnvöld eru þegar búin að setja á laggirnar starfshóp sem mun funda núna með helstu hagaðilum á næstu dögum og vikum einmitt til þess að vera með augun á boltanum. Það var vel að merkja samið um sérlausn á sínum tíma árið 2023. Það mál er enn þá óleyst og við höfum rætt það við framkvæmdastjórnina. Hún er að endurskoða líka sitt kerfi. Ég held að það verði að horfast í augu við það að það þarf að breyta því og við þurfum í samvinnu við helstu hagaðila að fylgja mjög vel eftir okkar hagsmunagæslu. Ég vil fagna því að það er nokkuð einróma afstaða hér í þingsal, tel ég, þegar kemur að hagsmunagæslu fyrir Íslands hönd í þessu máli. En ég vildi geta þess að við erum þegar farin af stað með starfshóp í þessa veru (Forseti hringir.) til þess að ná sem hagstæðustu og eðlilegastu niðurstöðu fyrir Ísland okkar.