157. löggjafarþing — 48. fundur,  15. des. 2025.

viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir og hollustuhættir og mengunarvarnir.

192. mál
[16:39]
Horfa

Ása Berglind Hjálmarsdóttir (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Mig langar að byrja á því að þakka hv. umhverfis- og samgöngunefnd fyrir mjög góða vinnu í þessu máli og geta þess að nefndin stofnaði líka til frumkvæðismáls þar sem við vorum að skoða öll þessi mál heildrænt sem snúa að kerfum okkar hér sem halda utan um losun landsins. Þetta mál snýst um að tryggja að Ísland sitji við sama borð og aðrir í ETS-kerfinu og vernda samkeppnisstöðu okkar og að við stöndum ekki fyrir utan reglur sem þegar gilda í Evrópu. Frumvarpið felur í sér lagfæringar og viðbætur við lög um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir til að tryggja að innleiðingin sé fullnægjandi. Meiri hluti umhverfis- og samgöngunefndar bindur vonir við að þessar breytingar leiði til skýrari krafna til gerðar kolefnishlutleysisáætlana og aukins fyrirsjáanleika varðandi úthlutun losunarheimilda atvinnulífinu til hagsbóta.