viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir og hollustuhættir og mengunarvarnir.
Virðulegur forseti. ETS-gjöldin, eða Emission Trading System-gjöldin, eru vissulega ekki fullkomið kerfi og eru gölluð. En ég get bara sagt það að hagsmunagæsla Íslands í þessu máli er öflug. Eins og hæstv. utanríkisráðherra sagði þá erum við með starfshóp að störfum núna sem lýtur að þessari hagsmunagæslu og það er gríðarlega mikilvægt að hún fari líka fram á pólitíska sviðinu. Ég verð bara að segja eins og er að hljómgrunnur Íslands á þessu sviði, og ég hef sjálfur haft reynslu af því, er mjög mikill. Það er tekið mjög jákvætt á móti því sem Ísland hefur fram að færa í þessu máli, það er alveg augljóst. Í siglingunum verður vonandi tekið upp alheimskerfi sem heitir Net-Zero Framework hjá Alþjóðasiglingamálastofnuninni. Það lagði ég áherslu á á aðalfundi Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar fyrir nokkrum vikum, IMO, og það er miklu betra að hafa heimskerfi í þessum málum. Það er vert að hafa áhyggjur af samkeppnishæfni innri markaðar EES og þetta er eitt af þeim málum sem þarf klárlega að taka á og verður vonandi gert í framtíðinni. (Forseti hringir.) Við erum eyja í Norður-Atlantshafi. Við verðum að gæta hagsmuna okkar innan þessa markaðar og við erum svo sannarlega að gera það í þessu máli.