viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir og hollustuhættir og mengunarvarnir.
Virðulegur forseti. Þetta ETS-kerfi er vont kerfi. Þetta er mjög vont kerfi og Evrópa er farin að átta sig á því að Evrópa er að tapa samkeppnishæfni út af þessu kerfi. Flugumferð er að minnka um evrópska flugvelli út af ETS-kerfinu. Hafnarumferð er að minnka um Evrópu út af ETS-kerfinu. Umferðin er að færast til hafna í Norður-Afríku og flugvellir, t.d. í Istanbúl, eru að stækka á kostnað t.d. Frankfurt. Þetta allt liggur fyrir og Evrópa er að velta fyrir sér hvernig hún getur brugðist við út af því að Evrópa og evrópsk fyrirtæki eru að tapa samkeppnishæfni sinni. Þetta kemur alveg einstaklega illa við íslensk fyrirtæki, bæði í flugi og í skipaflutningum. Það er akkúrat þess vegna og af þessum ástæðum sem þetta er bara í grunninn vont kerfi. Evrópusambandið er að átta sig á því og það er að hafa sérstaklega vond áhrif á íslensk fyrirtæki og það er þess vegna sem ég ætla að vera á gulu í dag.